Teymið

Við erum þrjár metnaðarfullar konur með fjölbreytta reynslu sem stöndum að baki SPJARA; Patricia Anna Þormar, Kristín Edda Óskarsdóttir og Sigríður Guðjónsdóttir. Allar eigum við sameiginlegt að hafa lagt lóð á vogarskálarnar í þágu umhverfismála, hver með sínum hætti.

Teymið kom fyrst saman í ágúst 2020 í Spjaraþoni Umhverfisstofnunar sem gekk út á að finna lausnir við textílsóun. Lausnin okkar, stafræna fataleigan SPJARA, bar sigur úr býtum og ákváðum við að láta reyna á að gera hugmyndina að veruleika. Við tók ár af þrotlausri vinnu meðfram námi, barneignum og ýmsum öðrum verkefnum, sem einkenndist af styrkumsóknum (mest höfnunum), nokkrum bylgjum af heimsfaraldri og alls konar óvæntum aðstæðum. Á slíkum stundum dreif okkur áfram sameiginleg sýn um heim án hraðtísku. Það er ósk okkar að fleirum verði kleift að neyta (og njóta!) tísku með umhverfisvænni hætti en án þess að það sé mikil fyrirhöfn. 

Leiguvefur SPJARA fór fyrst í loftið rúmlega ári síðar í september 2021 og hafa viðtökur staðið langt fram úr vonum.