Algengar spurningar

Hvernig virkar leiguferlið?

Ekkert öðruvísi en að versla vöru á netinu - nema vörunni er skilað aftur eftir að hafa notið hennar!

Notendur SPJARA eru hjartanlega velkomnir til okkar á opnunartíma til að skoða úrvalið og máta - ekki er nauðsynlegt að bóka tíma bara droppa við.

Þú getur skoðað lausar dagsetningar og leggur inn pöntun með því að velja “Add to cart,” velja hvenær þú vilt sækja og skila og fara síðan í “checkout”. Ef þú vilt getur þú bætt við 1500kr tryggingargjaldi sem dekkar minniháttar skemmdir og bletti.

Þá færðu sendan tölvupóst með greiðsluupplýsingum og getur greitt með millifærslu eða KASS. Flíkin er frátekin í sólarhring meðan þú gengur frá greiðslu.

Svo sækir þú flíkina í stúdíóið okkar kjallara á Kaffi Dal að Sundlaugarvegi 35 í Laugardalnum, nýtur þess að ganga í henni og skilar aftur að leigutíma loknum. Við sjáum um þrif og allt vesenið!

Opnunartími SPJARA er:

  • Þriðjudagar 16:30-18:00
  • Fimmtudagar 13:00-18:00
  • Föstudagar 12:00-16:00

     

    Hvernig skila ég SPJARA flík?

    Þú skilar á sama stað og þú sóttir að leigutíma loknum. Við tökum við flíkum á opnunartímum okkar á Kaffi Dal. 

    Er hægt að koma og máta? 

    Það er velkomið að koma og skoða og máta hjá okkur á Kaffi Dal hvenær sem er á opnunartíma og við aðstoðum við að finna flík sem þér líður vel í. Þú mátt endilega senda á okkur línu á hello@spjara.is, instagram eða messenger svo við áttum okkur á hvað við megum búast við mörgum í mátun.

    Hvað ef ég panta flík en hún passar ekki?

    Þér er velkomið að máta þegar þú sækir til að vera viss um að þér líði vel í flíkinni. Ef hún passar ekki aðstoðum við þig við að finna flík sem passar betur. Annars er líka í boði að fá leigugjald og tryggingagjald endurgreitt að fullu.  

    Hvað stærðir eru þið með?

    Við bjóðum upp á ýmsar stærðir og stefnum á að auka sífellt við úrvalið þannig að allir geti fundið eitthvað við hæfi. Hægt er að sjá stærðir í boði í textalýsingu fyrir hverja vöru og einnig er hægt að stilla leit eftir sérstökum stærðum. Við bjóðum upp á ýmislegar vörur í stærðum frá XS upp í XXL. 

    Hvað gerist ef flíkin skemmtist? 

    Óhöpp gerast! Saumspretta, blettur eða bilaður rennilás – við reddum því. Þess vegna mælum við eindregið með að notendur kaupi tryggingu á 1500kr sem dekkar minniháttar blettahreinsun og skemmdir – svo þú getir notið þess að ganga í flíkinni áhyggjulaus. 


    Hvernig virkar tryggingargjaldið?    

    Tryggingagjaldið dugar fyrir blettahreinsun á flíkum eða lagfæringum á minniháttar skemmdum ef til þess kemur. Tryggingagjaldið fæst ekki endurgreitt.

    Við mælum eindregið með því að notendur velji að greiða tryggingagjaldið því að öðrum kosti ber notandinn alfarið ábyrgð á öllum kostnaði vegna viðgerða, bletta eða skemmda sem kunna að verða við notkun á flík. SPJARA áskilur sér rétt til að innheimta þann kostnað að fullu.


    Hvað ef flíkin týnist?

    Ef flík týnist, eyðilegst eða er stolin meðan hún er í vörslu notanda áskiljum við okkur rétt til þess að innheimta allt að heildarverðmæti vörunnar sem gefið er upp á vef SPJARA. 

     

    Þarf ég að hreinsa flíkina áður en að ég skila henni?

    Nei, þú þarft almennt ekki að hafa áhyggjur af því að sjá um þrif á flíkinni áður en þú skilar. Ef blettir koma í flíkina er best að bleyta blettinn strax varlega með ylvolgu vatni. Ekki skal nudda blettinn þar sem margar flíkur eru úr viðkvæmu efni og þurfa sérstaka meðhöndlun. Heyrðu svo í okkur og komdu flíkinni á okkur sem fyrst svo við getum séð um rest. 


    Hvernig eru flíkur hreinsaðar á milli leiga?

    Það er okkur hjartans mál að hreinlæti sé fullnægjandi en af umhverfisástæðum þarf einnig að gæta þess að eiga sem minnst við flíkurnar hverju sinni. Þess vegna gufuhreinsum við allar flíkur sem það þola og handþvoum með mildum sápum. Gufuhreinsun drepur allt að 98% af bakteríum og eyðir lykt. Við setjum aðeins í hreinsun ef um erfiða bletti er að ræða eða flíkin er "dry-clean only."


    Hvað gerist ef ég skila flíkinni of seint?

    Það sama og þegar þú skilar bók og seint á bókasafnið. Ef þú skilar flík til okkar of seint þá rukkum við því sem nemur leigu á flíkinni í einn dag. Sem dæmi um kjól þar sem leiguverð er 5400.-  nemur daggjaldið um 3900.- Gott að hafa í huga að það eru fleiri sem bíða og gera þarf ráð fyrir tíma til að hreinsa hverja flík fyrir hverja notkun. 

     


    Er hægt að leigja fleiri en eina flík í einu?

    Algjörlega! Við erum með breitt úrval af fylgihlutum og yfirhöfnum sem er tilvalið að taka með.