Hvernig virkar SPJARA Bútík?
Fyrir seljandann er ferlið einfalt. Það þarf ekki að safna fullt af fötum til að ná í bás og t.d. hægt að koma með eina vöru. Enginn uppsetning eða markaðsstarf, við sjáum um allt það.
Fyrir kaupandann þá er það sama og þegar komið er á leiguna, hægt að treysta á fallegt úrval, sérvalið og ekkert grams. Hér getur þú séð úrvalið.
Ferlið
- Þú getur sent okkur línu á hello(hjá)spjara.is eða mætir til okkar með vörur sem þú hefur áhuga á að selja
- Við metum hvort að þær passi í SPJARA - Bútík og verðleggjum í samráði við þig, tökum myndir og markaðssetjum.
- Vörurnar eru hjá okkur í 6 vikur í sölu
- Eftir þann tíma þá sækið þið vörur sem ekki seldust
- Þú færð greitt fyrir hverja selda vöru í lok sölutímabils og getur valið um:
- Að fá inneign sem þú getur notað til að leigja eða kaupa
- Að fá greitt með millifærslu inn á reikning
- SPJARA tekur 35% söluþóknun fyrir að mynda vörur, setja upp á vefnum, auglýsa og selja í rýminu
Hvernig vörur?
Við veljum inn vörur sem samræmast kröfum okkar um ástand, stíl og gæði svo þeir sem versla í SPJARA Bútík geti gengið að góðu, sérvöldu úrvali sem vísu.
Við veljum líka inn eftir árstíðum og einblínum á:
Kápur, jakka, peysur, buxur, klúta og skó.
Merki sem hægt er að hafa til hliðsjónar en er alls ekki tæmandi listi :
ACNE, Anine Bing, GANNI, Isabel Marant, FilippaK, Gestuz, Opera Sport, Sport Max, Malene Birger, MAX MARA, Frankie Shop, Nanuskha, Stella McCartney TOTEME.